Náttúrufyrirbæri sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt 61. gr. laga um náttúruvernd (60/2013). Birkiskógar eru undanskildir. Náttúrufræðistofnun Íslands heldur skrá yfir náttúrufyrirbæri sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt náttúruverndarlögum og birtir í kortasjá sem jafnframt er viðauki við náttúruminjaskrá. Þessi náttúrufyrirbæri eru: votlendi, stöðuvötn og tjarnir, sjávarfitjar og leirur, mikilvægir birkiskógar, eldvörp, eldhraun, gervigígar og hraunhellar frá nútíma, fossar, hverir og aðrar heitar uppsprettur. Þau eru öll, birt í kortasjá NÍ fyrir utan birkiskóga sem Skógræktin sér um.
(The natural features of Article 61 'Special protection of ecological systems and geoheritage' in the Nature Conservation legislation (60/2013). Following natural features are under special protection: wetlands, lakes and waterfalls, salt marshes and mudflats, important birchwoods, volcanic craters, lava-fields, lava-caves and rootless vents formed after the last iceage, hot springs and other thermal sources including their biota and surfacial geothermal deposits. The data for important birchwoods are not available.)
Stöðuvötn, tjarnir og fossar: grunngögn Náttúrufræðistofnunar (gagnagrunnur IS 50V, vatnafar, flákalag is50v_vatnafar_flakar_17062017 og punktalag is50v_vatnafar_punktar_24122017 og is50v_ornefni_punktar_24122018) ásamt viðbótum frá Náttúrufræðistofnun Íslands sem sóttar eru í heimildir. Nákvæmni gagna er 1:50.000.
Votlendi, sjávarfitjar og leirur: úr vistgerðarkorti Náttúrufræðistofnunar Íslands [ https://vistgerdakort.ni.is/ ] endurskoðað 2018 (2. útg.). Nákvæmni gagna er 1:25.000.
Hverir og aðrar heitar uppsprettur: úr yfirlitskorti Náttúrufræðistofnunar Íslands og Orkustofnunar frá 2003 [ http://utgafa.ni.is/skyrslur/2003/NI-03016.pdf ]. Nákvæmni gagna er 1:500.000.
Eldvörp, gervigígar og eldhraun á nútíma: unnið á Náttúrufræðistofnun Íslands upp úr útgefnum jarðfræðikortum, loftmyndum og gögnum frá Veðurstofu Íslands. Nákvæmni gagna er allt að 1:25.000.
Hraunhellar: Unnið á Náttúrufræðistofnun úr gagnasafni frá Hellarannsóknarfélagi Íslands. Vegna verndarsjónarmiða er staðsetning hella birt sem hellasvæði (flákalag), en þar sem þjónusta er til staðar fyrir hellaskoðun er birt nákvæm staðsetning hella (punktalag). Nákvæmni hella með þjónustu er 1:25.000.
Birkiskógar: í vinnslu hjá Skógræktinni. Óvíst um hvenær gögn verða birt.
Equivalent Scale:
1:
25000
Constraints
Metadata about metadata
8817e173-8e2b-4dc4-a57c-348f75bfb85b
Náttúrufræðistofnun – Natural Science Institute of Iceland