ni_n50v Hraun frá nútíma (Sérstök vernd náttúrufyrirbæra) – 1:25.000
Þekja (layer) n25v_hraunNutima_fl: Eldhraun (hraun) sem myndast hafa eftir að jökull hvarf af landinu á síðjökultíma. (Postglacial lavas in Iceland.) Eldhraun sem myndast hafa eftir að jökull hvarf af landinu á síðjökultíma njóta sérstakrar verndar samkvæmt 61 gr. í lögum um náttúruvernd. Náttúrufræðistofnun Íslands heldur skrá yfir þessi náttúrufyrirbæri og birtir í kortasjá sem jafnframt er viðauki við náttúruminjaskrá. Hraun frá nútíma eru flokkuð í forsöguleg og söguleg hraun og í gögnunum eru upplýsingar um aldur, eldstöðvakerfi og heiti hrauna. Heimildaskrá fylgir (n25v_gigarOgHraunNutima_heimildir).
Landupplýsingagögnin yfir hraun runnin eftir ísöld eru unnin á Náttúrufræðistofnun Íslands. Hraunin voru skjáhnituð upp eftir heimildum, en stundum voru þau greind og hnituð beint af loftmyndum. Stuðst var við loftmyndir frá Loftmyndum ehf., frá ESRI gervitunglamyndum, útgefin prentuð jarðfræðikort frá ýmsum aðilum, fræðigreinar og rit um nútímahrauna á Íslandi. Náttúrufræðistofnun Íslands fékk landupplýsingaþekju frá Veðurstofu Íslands sem inniheldur hluta af nútímahraunum landsins og þekju af sögulegum Hekluhraunum útgefin 2018 af Gro Birkefeldt Möller Pedersen o.fl. Þekktur aldur hrauna eða gosár myndunar er fenginn úr ýmsum heimildum og er samræmdur undir fitjueigindinni "aldurNI". Fyrir hraun frá forsögulegum tíma (H_isfs) er gefinn upp aldur myndunar t.d. 8000 ára, en frá sögulegum tíma (H_iss) er gefið upp gosár t.d. 1766. Viðmiðunarmælikvarði er um 1:25.000 en nákvæmni gagna er allt að 1:10.000. Heimildir eru skráðar í töflu með skammstöfun sem vísar í heimildarskrá n25v_gigarOgHraunNutima_heimildir
Equivalent Scale:
1:
25000
Commission Regulation (EU) No 1089/2010 of 23 November 2010 implementing Directive 2007/2/EC of the European Parliament and of the Council as regards interoperability of spatial data sets and services