ni_n50v Hverir og aðrar heitar uppsprettur (Sérstök vernd náttúrufyrirbæra) – 1:500.000
Þekja (layer) n500v_jadhiti_p og n500v_jardhiti_fl: Hverir og aðrar heitar uppsprettur. (Hot springs and other wells.)
Hverir og aðrar heitar uppsprettur ásamt lífríki sem tengist þeim, virkri ummyndun og útfellingum, þar á meðal hrúðri og hrúðurbreiðum njóta sérstakrar verndar samkvæmt 61 gr. í lögum um náttúruvernd. Náttúrufræðistofnun Íslands heldur skrá yfir þessi náttúrufyrirbæri og birtir í kortasjá sem jafnframt er viðauki við náttúruminjaskrá. Jarðhitakort af Íslandi frá árinu 2003 eru einu aðgengilegu gögnin fyrir þetta náttúrufyrirbæri og sem ná yfir allt landið. Upplýsingar um lífríki, ummyndun og útfellingar hefur ekki verið safnað saman og fylgir ekki með gögnunum.
Hverir og aðrar heitar uppsprettur – n500v_jadhiti_p og n500v_jardhiti_fl – smámynd
Helgi Torfason jarðfræðingur tók saman upplýsingar um jarðhita á Íslandi og kynnti fyrstu drög að jarðhitakorti og gagnasafni á ársfundi Orkustofnunar 1993. Jarðhitakort af Íslandi frá árinu 2003 er hluti af skýrslu: Helgi Torfason: Jarðhitakort af Íslandi og gagnasafn um jarðhita. Náttúrufræðistofnun Íslands og Orkustofnun, NÍ-03016; OS-2003/062.
Þetta eru einu aðgengilegu gögnin sem ná yfir allt landið fyrir náttúrufyrirbærið Hverir og heitar uppsprettur í 61. gr. Fyrir það eru birt punktagögn sem sýna jarðhitagufur, hveri, laugar, volgrur, kolsýrulaugar, yfirborðshita í eldstöð og flákar fyrir háhitasvæði. Á flestum jarðhitasvæðum eru ummyndanir eða útfellingar á yfirborði en sýnileiki þeirra hefur ekki verið kortlagður. Upplýsingum um lífríki jarðhitasvæða landsins hefur ekki verið safnað saman.
Commission Regulation (EU) No 1089/2010 of 23 November 2010 implementing Directive 2007/2/EC of the European Parliament and of the Council as regards interoperability of spatial data sets and services