ni_n50v Hraunhellar frá nútíma (Sérstök vernd náttúrufyrirbæra) – 1:100.000
Þekjur (layers) n100v_hellasvaedi_fl og n25v_hellarLeidsogn_p: Hraunhellar sem myndast hafa eftir að jökull hvarf af landinu á síðjökultíma. (Caves in postglacial lavas in Iceland.)
Hraunhellar sem myndast hafa eftir að jökull hvarf af landinu á síðjökultíma njóta sérstakrar verndar samkvæmt 61 gr. í lögum um náttúruvernd. Náttúrufræðistofnun Íslands heldur skrá yfir þessi náttúrufyrirbæri og birtir í kortasjá sem jafnframt er viðauki við náttúruminjaskrá. Hellar eru í tveimur lögum: flákalag fyrir hellasvæði og punktalag fyrir hella með þjónustu.
Hraunhellar frá nútíma – n100v_hellasvaedi_fl og n25v_hellarLeidsogn_p – smámynd
Landupplýsingar yfir hraunhella eru unnin á Náttúrufræðistofnun Íslands úr gagnasafni Hellarannsóknarfélags Íslands. Útfrá verndarsjónarmiðum og í samráði við Hellarannsóknarfélagið er ekki birt nákvæm staðsetning á hverjum og einum helli en þess í stað birt hellasvæði (flákalag) án frekari upplýsinga í fitjuskrá. Fyrir hella sem hafa eftirlit, bjóða upp á þjónustu og hellaskoðun undir leiðsögn er birt nákvæm staðsetning (punktalag). Nákvæmni gagna fyrrir hella með þjónustu er 1:25.000, en fyrir hellasvæði um 1:100.000.
Equivalent Scale:
1:
100000
Constraints
Metadata about metadata
9a23ff93-ba0e-496d-bf4f-9400f5a83721
Náttúrufræðistofnun – Natural Science Institute of Iceland